Við hönnun merkisins var haft að leiðarljósi hlutverk TERIS sem er þjónusta við fyrirtæki á fjármálasviði. Leturgerðin í merkinu er sérstaklega hönnuð fyrir verkefnið. Hún er nútímaleg og "High Tech" en engu að síður einföld, beinskeytt og auðlæsileg.

E-ið í nafninu er dregið fram með litabreytingu og sviga í hálfhring. Því er ætlað er að leggja áherslu á tengslin við rafræn viðskipti (E-Commerce), hnattvæðinguna og alþjóðaviðskipti.

Litirnir í merkinu eru tveir:
Dimmblár: traust, auðlegð og þekking.
Appelsínugulur: framsýni, dugnaður og djörfung.

Hönnuður merkisins er Kristján E. Karlsson.

MEIRA