11.03 2005

Tólf merki eftir Kristján E. Karlsson, hönnuð hjá Kraftaverki, hafa verið valin til birtingar í yfirlitsbók um hönnun merkja, Logolounge II, sem kemur út um þessar mundir. Þetta er mjög ánægjuleg viðurkenning fyrir íslenska hönnun á erlendum vettvangi.

Í bókinni er að finna merki fyrir fyrirtæki eins og FedEx, Kentucky Fried, Microsoft, Shell o.fl.

Mikilvægi hönnunar og lista er að aukast í alþjóðlegum viðskiptum. Á sama hátt og hugtakið iðnhönnun vísar til hugmyndarinnar að baki vörunni, speglar gott kennimark (logo) vöru eða fyrirtækis frumdrætti eigindar (identity) og gegnir afar mikilvægu hlutverki í markaðs- og ímyndarstarfi.

TIL BAKA